Ritstjórnarlegt sjálfstæði
Ritstjóri hvers miðils ber ábyrgð á efni hans. Ritstjórn og auglýsingasala eru aðskildar.
Valddreifing í eignarhaldi
Enginn fer með meira en 10% atkvæða á aðalfundi, óháð eignarhlut. Það er bundið í samþykktir félagsins. Hluthafar eru 24 og hluthafaskráin er birt.
Ritstjórar bera ábyrgð á efni
Ritstjóri hvers miðils ber ábyrgð á efni hans og starfar í umboði stjórnar félagsins. Ritstjórnir fylgja siðareglum og ritstjórnarstefnu síns miðils.
Ritstjórn og auglýsingar eru aðskildar
Fastir starfsmenn ritstjórna vinna ekki kynningar. Kynningarefni er merkt sem slíkt. Birtingasalan selur auglýsingar á miðlunum, ekki ritstjórnirnar.
Hagsmunir ritstjóra
Ritstjórar Heimildarinnar birta hagsmunaskráningu sína.
Reglur miðlanna
Hver miðill setur sér reglur um ritstjórnarlegt sjálfstæði, samkvæmt 24. gr. laga um fjölmiðla nr. 38/2011. Fjölmiðlanefnd hefur eftirlit með þeim.